Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

4. apríl 1990

Í þættinum ræðir Hemmi Gunn við Halldór Halldórsson, og í söngvakeppni þáttarins syngur Rakel Andrea Garðarsdóttir með hljómsveit. Luz Maria Garzia Arnaoud sýnir mexíkóskan þjóðdans og Logi brunavörður, í túlkun Gísla Rúnars Jónssonar, bregður á leik með Hemma. Sýndar eru brosmyndir úr BROS-keppninni og danskt söngband flytur lagið Black Is Black. Eftirhermurnar Kölski og Konni (Magnús og Halldór) skemmta áhorfendum og Björgvin Halldórsson syngur lagið Skýið við undirleik hljómsveitar. Falin myndavél fylgir uppátæki Frú Hermínu á Umferðarmiðstöðinni, og hljómsveitin Risaeðlan flytur lagið Vonin. Hemmi og Logi birtast aftur á sviðinu áður en Hemmi ræðir við Liz Mitchell, söngkonu Boney M., og hljómsveitin flytur lagið Rivers of Babylon áður en Hemmi kveður áhorfendur.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 4. apríl 1990.

Birt

13. nóv. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,