Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

18. janúar 1989

Hemmi býður fyrsta gest velkominn og tekur síðan þátt í spurningaleik með Pétri Þorleifssyni. Unglingahljómsveitin Sue Ellen frá Neskaupstað flytur lagið Elísa og Sykurmolarnir taka við myndbandaverðlaunum. Sigurður Bragason syngur ítalskt lag, keppt er í brandarakeppni og Leoncie flytur lagið She Is So Uniqe. Einnig sjáum við atriði úr falinni myndavél og Eyjólfur Kristjánsson syngur Ertu viss. Ólafur Ragnar Grímsson kemur í sófann til Hemma þar sem Jóhannes Kristjánsson slæst í spjallið, áður en Elsa Lund kynnir hljómsveitina Honey B., sem flytur lagið Howling at the Moon.

Þessi þáttur var fyrst á dagskrá 18. janúar 1989.

Birt

8. maí 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,