Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

24. janúar 1990

Í þættinum bregða Hemmi Gunn og Logi brunavörður, í túlkun Gísla Rúnars Jónssonar, á leik áður en Hemmi ræðir við Davíð Oddsson, borgarstjóra Reykjavíkur. Sigríður Guðnadóttir, keppandi í söngvarakeppni þáttarins, syngur lagið Hvernig ég lifað einn dag án þín með eigin texta og sýndar eru brosmyndir úr BROS-keppninni. Hemmi spjallar einnig við Friðrik Guðna Þorleifsson, sem leikur á langspil og syngur, og við óperusöngkonuna Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, sem flytur aríu við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Birna Erlingsdóttir kemur í spjall og tekur þátt í spurningaleik þar sem hún velur sér ferðafélaga til London, og Andri Örn Clausen syngur gamanvísur við undirleik hljómsveitar hússins áður en hann ræðir við Hemma. Falin myndavél er á sínum stað þar sem Hemmi bregður sjálfur á leik fyrir utan Hótel Loftleiðir, töframaðurinn Garreth Williams frá London sýnir listir sínar og lokum syngur Hjálmfríður Þöll Friðriksdóttir lagið Cleasy við undirleik hljómsveitarinnar á meðan Hemmi og Logi slá á létta strengi.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 24. janúar 1990.

Birt

16. okt. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,