Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

19. apríl 1989

Í þættinum spjallar Hemmi við Guðbjörn Ingvarsson sem er í gervi Guðmundar Jaka, og Ludo og Stefán flytja lagið Olsen Olsen þar sem Elsa Lund fær afhentan lykil. Taílenskar stúlkur sýna hefðbundinn Thai-dans og Hemmi ræðir við færeyska gestinn Eystana, þar sem Elsa slæst í hópinn. Víkingabandið flytur lagið Út á gólfið og Hemmi afhendir verðlaun í brandarakeppni áður en verðlaunabrandarinn er sýndur. Arnar Símonarson bregður sér í gervi færeyskrar konu og grínast, og Ragnar Bjarnason kemur í spjall til Hemma áður en hann syngur My Way. Hemmi og Helga Brá afhenda þátttakendum í söngvarakeppni blóm og tilkynna úrslitin þar sem Áslaug Fjóla Magnúsdóttir sigrar og flytur sigurlagið sitt. Þá er sýnt úrval atriða úr falinni myndavél vetrarins og Jóhannes Kristjánsson skemmtir í gervi Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra. Ómar Ragnarsson kemur einnig í spjall og flytur kvæði áður en hann syngur Sveitaball með Víkingabandinu, og lokum sameinast allir á sviðinu í kveðju- og saknaðarsöng.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 19. apríl 1989.

Birt

10. júlí 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,