Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

15. mars 1989

Í þættinum spjallar Gunnar Huseby við Hemma í sófanum og sönghópurinn Einn og átta flytur lagið Rósamarí. Gunnar Bjarni Guðmundsson svarar spurningum úr Njálu og Íslandsmeistarar í rokkdansi stíga á svið við undirleik hljómsveitar Magnúsar Kjartanssonar með laginu Þegar Skúli hringdi inn. Einnig sjáum við undanúrslit úr brandarakeppni, en Þurý Birgisdóttir og Áslaug Fjóla Magnúsdóttir flytja lög í söngvarakeppni þáttarins. Falin myndavél er á sínum stað þar sem Ragnar Ómarsson er fyrir utan sundlaugarnar í Laugardal, og breska hljómsveitin The Men They Couldn’t Hang flytur lagið Speed. Hemmi ræðir svo hvalamálið við „sérfræðingana“ Gísla Rúnar og Eddu Björgvinsdóttur, Edda Guðmundsdóttir syngur Hamraborgin og Elsa Lund kemur með óvænt uppátæki og færir Hemma blóm frá Kiwanisklúbbnum í Garðabæ. lokum flytja Rokkbændur frá Vestfjörðum sveitaballssyrpu.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 15. mars 1989.

Birt

19. júní 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,