Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

15. nóvember 1989

Í þættinum ræðir Hemmi Gunn við Werner Tessnow, Þjóðverja sem tók þátt í seinni heimsstyrjöldinni og tekur upp harmonikku í sófanum og leikur þýskt lag á harmonikku en endar á því spila stef úr Lili Marleen á munnhörpu. Sýndar eru brosmyndir af Ampex-spólu og String Trio of New York flytur létt jazzlag. Hemmi kynnir einnig þátttakendur í spurningaleik og sýnir mynd sem honum var send, en Jónatan Garðarsson og Pétur Kristjánsson ræða við hann og taka þátt í spurningaleik um útgáfur hljómplatna. Eiríkur Hauksson syngur lagið Truntu-búgí við undirleik hljómsveitar Magnúsar Kjartanssonar, og Birgitte Heide og David Hönar frá Kramhúsinu dansa argentínskan tangó. Falin myndavél er á sínum stað þar sem götusópari lendir í vandræðum með aðstoð Helgu Sigríðar Harðardóttur og Atla Geirs Grétarssonar, og lokum flytur hljómsveitin Sálin hans Jóns míns lagið Eltu mig uppi.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 15. nóvember 1989.

Birt

24. júlí 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,