Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

5. apríl 1989

Í þættinum grínast Elsa Lund og Rósa Ingólfs í beinni útsendingu áður en Pétur Maack kemur í viðtal til Hemma. Hljómsveitin Eftirlitið flytur lagið Lokað sund og Lára Stefánsdóttir og Hanny Hadaya úr Íslenska dansflokknum dansa verkið Barflugan. Í söngvarakeppni þáttarins syngja Guðrún Norðfjörð lagið Skot í myrkri og Kolbrún Hjálmtýsdóttir lagið Braggablús. Þátttakendur í keppninni um titilinn Herra Ísland sprella með Hemma og Elsa Lund slæst í hópinn til spjalla við þá. Páll Svavarsson, formaður Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, tekur við gjöf frá Hemma, Elsa syngur lagið Vorið er komið og grundirnar gróa og falin myndavél er á ferðinni á Reykjavíkurflugvelli. Hljómsveitirnar Rickshaw og Mammoth flytja lögin Hotrod Made for Love og Can’t Take the Hurt, og Jóhannes Kristjánsson skemmtir áhorfendum í gervi Alberts Guðmundssonar.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 5. apríl 1989.

Birt

3. júlí 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,