Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

29. nóvember 1989

Í þættinum kynnir Hemmi Gunn efnið og ræðir við Lindu Pétursdóttur, alheimsfegurðardrottningu. Geirmundur Valtýsson og Helga Möller flytja lagið Vertu og Hemmi segir frá broskeppni þáttarins ásamt innslagi frá atkvæðagreiðslu á Bíldudal. Söngkonan Margarita Havarinen syngur Summertime við undirleik hljómsveitar Magnúsar Kjartanssonar, og Pétur Gunnarsson og Sigurður Pálsson taka þátt í spurningaleik með Hemma. Einnig eru sýnd brosinnslög af Ampex-spólu og Hemmi spjallar við hóp ungra söngvara, Rokklingana, sem flytja syrpu af íslenskum dægurlögum. Falin myndavél er á sínum stað í kjötafgreiðslu, og hljómsveitin Síðan skein sól kemur fram þar sem Helgi Björnsson syngur lagið Ég verð skjóta þig. Elsa Lund lítur við í spjall og lokum ræðir Hemmi við Valgeir Guðjónsson, sem flytur lagið Reynslan hefur kennt mér.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 29. nóvember 1989

Birt

31. júlí 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,