Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

7. mars 1990

Hemmi Gunn fær verkalýðsleiðtogann Guðmund J. Guðmundsson í spjall. Hljómsveitin Bootlegs flytur þungarokk og sýndar eru myndir í broskeppni þáttarins. Eydís Eyjólfsdóttir, Selma Björnsdóttir og Helena María Jónsdóttir sýna frumsaminn funkdans sem nefnist Á tali, og Logi brunavörður, í túlkun Gísla Rúnars Jónssonar, kemur í heimsókn. Sex ára Inga Dóra Björnsdóttir frá Selfossi, sem fótbrotin á sjúkrahúsi í sex vikur, syngur lagið Óskasteinar. Hafliði Jóhannsson tekur þátt í spurningaleik þar sem hann vinnur ferð til Frankfurt og velur Lísu Kristinsdóttur sem ferðafélaga. Hljómsveitin Kuran Swing, skipuð Szymon Kuran, Birni Thoroddsen, Ólafi Þórðarsyni, Þórði Högnasyni og Magnúsi Einarssyni, flytur Sweet Georgia Brown. Falin myndavél sýnir brot úr því helsta sem gert var í vetur, meðal annars heimsókn til Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur, og lokum flytja búlgarska söngkonan Nadka Karadschova og eiginmaður hennar Stefan Karadschov þjóðlag þar sem hann leikur á harmónikku. Kolbrún Hjálmtýsdóttir og Geir Ólafsson enda þáttinn með því stæla Ragnhildi Gísladóttur og Stefán Hilmarsson með lögunum Ég er fegurðardrottning og Í nótt.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 7. mars 1990.

Birt

30. okt. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,