Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

15. febrúar 1989

Í þættinum spjallar hinn fjögurra ára Tómas Freyr Aðalsteinsson við Hemma og syngur lagið Syngjum öll um Sókrates. Langi Seli og Skuggarnir flytja Breiðholtsbúgí og Elsa Lund fíflast í Hemma um söngvakeppni. Bjöllukórinn úr Garði leikur Morning Has Broken og við sjáum einnig atriði úr falinni myndavél. Jón (Jójó) syngur Stæltir strákar og Gísli Rúnar og Edda Björgvinsdóttir skemmta með gríni í sófa og í síma. Valgeir Guðjónsson flytur lagið Ég held ég gangi heim, keppt er í brandarakeppni og Elsa stríðir Hemma aftur um Michael Jackson. lokum stígur hollenskur dansari á svið og stælir Michael Jackson við lagið Bad áður en Hemmi og Elsa kveðja áhorfendur.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 15. febrúar 1989.

Birt

29. maí 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,