Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

21. mars 1990

Í þættinum kynnir Hemmi Gunn efnið og hljómsveit kvöldsins og spjallar í sófanum við myndlistarmanninn Braga Ásgeirsson. Stúlkur úr Mosfellsbæ syngja raddað án undirleiks og sýndar eru brosmyndir úr BROS-keppninni við undirleik hljómsveitarinnar. Haraldur Helgason úr Njarðvík syngur með hljómsveitinni og síðan tekur Auðunn Bragi Sveinsson þátt í spurningaleik með Hemma. Bræðurnir Gunnar og Sigmundur flytja lag við undirleik hljómsveitar Magnúsar Kjartanssonar, og falin myndavél er á sínum stað. Andrea Gylfadóttir og Reynir Guðmundsson syngja lög úr söngleikjunum Jesus Christ Superstar og Cats, og listamaðurinn Cheo Cruz frá Kólumbíu fremur gjörning á sviðinu. Logi brunavörður, í túlkun Gísla Rúnars Jónssonar, bregður á leik með Hemma, og lokum flytur írski þjóðlagasöngvarinn Michael Kiely lög við gítarundirleik með hljómsveit.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 21. mars 1990.

Birt

6. nóv. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,