Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

27. desember 1989

Í þættinum ræðir Hermann við Þorbjörgu Pálsdóttur frá Álftafirði sem segir frá starfi sínu í Félagi eldri borgara í Kópavogi og bernskujólum sínum fyrir austan. Svanhildur Jakobsdóttir og Anna Mjöll Ólafsdóttir flytja jólasyrpu eftir Ólaf Gauk Þórhallsson, og afmælisbarn dagsins, Bjarni Felixson, kemur í heimsókn og spjallar við Hermann. Edda Borg og hljómsveit flytja lagið Utopía og Hermann kynnir söngvarakeppni þáttarins ásamt ljósmyndakeppninni Bjartasta brosið 1990, þar sem innsendar myndir eru sýndar. Söngflokkur úr Hvítasunnusöfnuðinum, Jólabrot, flytur jólasyrpu og falin myndavél fylgir Margréti Sigurðardóttur sem reynir nágranna til hjálpa sér við bakstur vegna bilaðrar eldavélar. Björgvin Halldórsson og Ruth Reginalds syngja lagið Þú komst með jólin til mín, og Eyþór Arnalds ræðir við Hermann um hljómsveitina Todmobile, sem flytur lagið Sól, jörð og máni. Bára Magnúsdóttir og Pétur Hannesson sýna Lambada-dans og lokum kemur Þorvaldur Halldórsson í heimsókn, ræðir m.a. um trúna og sönghópur úr Krossinum í Kópavogi flytur lagið Blessað þitt nafn.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 27. desember 1989.

Birt

14. ágúst 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,