Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

10. janúar 1990

Í þættinum ræðir Hemmi Gunn við Kjartan Ragnarsson, og hljómsveitin Barkabræður flytur lagið Ó þú. Sýndar eru brosmyndir af Ampex-spólu og Guðbjörg Ingólfsdóttir, keppandi í söngvarakeppni þáttarins, syngur Aldrei ég gleymi við undirleik hljómsveitar Magnúsar Kjartanssonar. Hemmi spjallar einnig við Ásrúnu Gústafsdóttur, unga stúlku sem lenti í umferðarslysi, og hún syngur Maístjörnuna. Kolbeinn Ketilsson og Unnur Astrid Wilhelmsen flytja dúett, Hick Mad Barudi dansar vélmennadans og Helga Braga Jónsdóttir ræðst inn á sviðið til Hemma, spjallar við hann og flytur ljóð. Falin myndavél er á ferðinni í Mannfræðideild Háskóla Íslands með Þórunni Dögg Árnadóttur og Margréti Sigurðardóttur, og hljómsveitin Sérsveitin flytur lagið Töffarinn. Jóhannes Kristjánsson skemmtir í gervi Steingríms Hermannssonar, Barkabræður flytja Ratesky-marsinn og Hemmi afhendir verðlaun fyrir tónlistarmyndband ársins til Einars Arnar Benediktssonar og Óskars Jónassonar úr Sykurmolunum fyrir myndbandið Pláhnetan. lokum taka Hemmi og Kjartan Ragnarsson létta syrpu af lögum með textum eftir Kjartan.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 10. janúar 1990.

Birt

18. sept. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,