Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

1. mars 1989

Hjörtur Benediktsson bregður sér í gervi Steingríms J. Sigfússonar og spjallar við Hemma, og Ingimar Sigurðsson kemur í viðtal og flytur lagið Bjórmenningin. Gunnar Bjarni Guðmundsson frá Hellu svarar spurningum úr Njálu og Finnur Eydal leikur Bjórkjallarinn á saxófón með hljómsveit. Við sjáum einnig atriði úr falinni myndavél í Kaupfélaginu í Borgarnesi og Arnór Ingólfsson lögreglumaður spjallar við Hemma áður en Lögreglukórinn syngur Ég held ég gangi heim. Elsa Lund færir Hemma 70 rósir frá auglýsingadeild RÚV og Bavarian Band frá München spilar og jóðlar tvö lög. Edda Björgvinsdóttir mætir í gervi sérfræðings og fíflast með Hemma um leikstjóradeiluna á Akureyri þar til henni er hent út af sviðinu, og lokum flytja Village People Y.M.C.A.. Eiríkur Hauksson kemur í spjall til Hemma áður en hann flytur lagið Sekur, með óvæntri innkomu Elsu Lund á milli.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 1. mars 1989

Birt

5. júní 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,