Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

7. febrúar 1990

Í þættinum ræðir Hemmi Gunn við Jón Óttar Ragnarsson, sjónvarpsstjóra á Stöð 2, og kynnir sönghópinn Raddbandið sem flytur lagið Harðsnúna Hanna. Sýndar eru brosmyndir úr BROS 90, og Logi brunavörður í túlkun Gísla Rúnars Jónssonar ræðst inn í sófann til Hemma þar sem þeir bregða á leik. Sex ára Kristinn Ingason dansar Michael Jackson dans og spjallar við Hemma, og norsku hjónin Gunnar Andreassen og Jóhanna Pétursdóttir koma í heimsókn þar sem meðal annars er leikið á barkflautu. Kolbrún Narszynski, keppandi í söngvarakeppni þáttarins, flytur þungarokkslag með eigin texta, og Birna Erlingsdóttir og Geir Bjarnason segja frá ferð sinni til London og skoða myndir úr ferðinni með Hemma. Örvar Kristjánsson og Hjördís Geirsdóttir syngja lagið Sunnanvindur, falin myndavél fylgir vandræðum með skemmda bíla þar sem Hjálmar Hjálmarsson kemur við sögu, og Logi brunavörður og Hemmi takast á í spurningaleik. lokum kemur bandaríska kántrísöngkonan Tammy Wynette í spjall og flytur lagið Stand by Your Man við undirleik hljómsveitar sinnar.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 7. febrúar 1990.

Birt

9. okt. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,