Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

29. mars 1989

Í þættinum ræðir Hemmi við Magnús Kjartansson um söngvarakeppnina áður en Elsa Lund slæst í hópinn. Barnakór Seljaskóla, undir stjórn Eddu Borg, syngur lag um það sem er bannað og Hemmi spjallar við Gunnar B. Guðmundsson og spyr hann spurninga úr Njálu. Blásarakvintett Tónlistarskóla Akraness flytur tónverk og sýndur er seinni hluti undanúrslita í brandarakeppni. Í söngvarakeppni þáttarins syngja Bergþóra Sigurðardóttir lagið Vetrarsól og Bryndís Valdimarsdóttir lagið Stopp, á meðan Elsa Lund flytur franskt lag og skemmtir Hemma með sínum hætti. Þá bregður Jóhannes Kristjánsson sér í gervi tveggja þekktra fréttamanna, falin myndavél frá Selfossi er á sínum stað og lokum flytja Dr. Hook & the Medicine Show lagið On the Cover of the Rolling Stone.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 29. mars 1989.

Birt

26. júní 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,