Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

21. febrúar 1990

Í þættinum ræðir Hemmi Gunn við Gylfa Ægisson, sem flytur lagið Gústi Guðsmaður með eigin texta og lagi. Sýndar eru brosmyndir úr BROS 90, og í söngvarakeppni þáttarins syngur Andrés Ásmundsson lagið Þú ert eina. Auðunn Bragi Sveinsson tekur þátt í spurningakeppni, og kvartett úr Hveragerði flytur lagið Söngurinn hressir við píanóundirleik. Jón Egill og Bryndís frá Dansstúdíói Sóleyjar sýna dans, og Kristján Hreinsson flytur vísur og ljóð eftir sjálfan sig við undirleik Tryggva Hübner. Afdalasystur syngja lagið Það er draumur vera með dáta, falin myndavél fylgir atburðum á Alþjóðadegi skáta og Georg Grosman flytur blús á gítar og syngur. Jóhannes Kristjánsson skemmtir með gríni um mál mánaðarins og lokum stígur Hemmi sjálfur á svið, þakkar fyrir og syngur lagið Út á gólfið ekkert stress eftir Gylfa Ægisson.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 21. febrúar 1990.

Birt

23. okt. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1989-1990

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,