• 00:00:43Líðan barna eftir covid
  • 00:12:38Uppskrift: líf eftir dauðann
  • 00:18:50Ævintýraheimur á Akureyri

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Andleg líðan íslenskra ungmenna, líf eftir barnsmissi og ævintýragarður

Umræða um vanlíðan ungmenna og barna, og hörku og ofbeldi í samskiptum þeirra, hefur verið hávær að undanförnu. Þetta samsvarar niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem unnin var undir forystu Háskólans í Reykjavík á geðheilsu íslenskra ungmenna eftir covid-faraldurinn. Niðurstöðurnar sýna að andleg líðan íslenskra ungmenna er ekki enn komin í eðlilegt horf eftir covid. Gestur Kastljóss er Þórhildur Halldórsdóttir, dósent í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og klínískur barnasálfræðingur.

Hvernig heldur maður áfram með lífið eftir að maður missir það dýrmætasta sem maður á? Í stuttmyndinni Uppskrift: líf eftir dauðann reynir Bergþóra Björnsdóttir að svara því hvernig hún náði að halda áfram eftir að dóttir hennar lést aðeins 16 mánaða. Viktoría Hermannsdóttir settist niður með Bergþóru sem fékk Edduverðlaun fyrir myndina sína í fyrra.

Við Oddeyrargötu á Akureyri er hús sem lætur ekki mikið yfir sér. En við nánari skoðun kemur í ljós ævintýraheimur. Óðinn Svan kíkt í garðinn.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,