• 00:00:56Íþróttir blómstra í Færeyjum
  • 00:09:30Málefni fanga
  • 00:21:51Stuart Richardson sýnir í Ljósmyndasafni Reykjavík

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Íþróttaæði í Færeyjum, aðbúnaður á Litla Hrauni, Undiralda í Grófarhúsi

Óhætt er að segja að íþróttaæði sé runnið á frændur okkar í Færeyjum. Karlandsliðið komst á dögunum í fyrsta skipti á lokamót EM í handbolta og fótboltaliðið í Klakksvík hefur skákað hverju stórliðinu í Evrópu á fætur öðru. Óðinn Svan og Grímur Jón kíktu til Færeyja til að reyna að komast því, hvað veldur.

Aðstæður á Litla-Hrauni eru hörmulegar, eins og fram kom í Kveik í gær. Húsnæðið er myglað og að miklum hluta ónothæft, geðheilbrigðisþjónusta er af skornum skammti og fátt sem stuðlar að því að þeir sem þurfa að afplána þar refsivist komi betri menn út. Kastljós ræddi fangelsismál við þær Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra og Dagbjörtu Hákonardóttur, þingmann Samfylkingarinnar.

Undiralda er heiti á ljósmyndasýningu Stuarts Richardson sem nú má finna í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Grófarhúsi við Tryggvagötu. Við litum á sýninguna.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,