Helgarútgáfan heilsaði upp úr hádegi á kjördegi. Aðalgestur þáttarins var hinn ungi og stórefnilegi leikari Mikael Emil Kaaber. Það stendur mikið til hjá honum á næstunni, við fengum af því fregnir á dögunum að hann verði í teyminu sem færa mun okkar þjóðinni Áramótaskaupið í ár. Mikael er einnig að frumsýna ásamt góðum hópi glænýja íslenska kvikmynd í næstu viku, mynd sem heitir Hvar er draumurinn? og er söngleikjakvikmynd eins konar og byggð utan um lög og texta Sálarinnar hans Jóns míns. Við spurðum hann út í þetta allt saman en við fengum líka fáein stórskemmtileg meðmæli hjá honum í Meðmælasúpunni góðu.
Líkt og endranær þá skimuðum við yfir úrval viðburða helgarinnar og tökum í framhaldi upp símann í leiðinni. Við slógum á þráðinn til Elísabetar Agnar Jóhannsdóttur á Akureyri en þar stóð yfir Akureyrarvaka þessa helgina. Svo fengum við að heyra allt um Hamraborgarfestival í Kópavogi þegar Dýrfinna Benita Basalan leit við og sagði okkur frá hátíðinni og frá tónlistarverkefni sínu, Countess Malaise.
Hjörvar Hjörleifsson gaf út plötu í sumar og útgáfutónleikar voru fram undan. Við fengum póstkort frá Hjörvari.
Það var auðvitað kjördagur þennan daginn og þjóðin hafði fylgst með baráttu beggja fylkinga síðustu vikurnar. Alls konar frasar fengu að fjúka en þó ekki einhver stuðningsmannalög. Hlustendur voru spurðir um skemmtileg baráttu- og stuðningslög sem hæfðu þessum fína laugardegi og útkoman var þessi í bland við það ferskasta og vinsælasta.
Á MÓTI SÓL - Hvar sem ég fer
LOGI PEDRO - Englar alheimsins
MARSIBIL - Allir slakir
WARMLAND - Violet Dreams
THE CARDIGANS - Lovefool
HOWARD JONES - What Is Love?
STEINUNN JÓNSDÓTTIR - Spóla til baka
ELDFUGLINN - Eldfuglinn
ERLING ÁGÚSTSSON - Við gefumst aldrei upp
CHAKA KHAN, SNOOP DOGG - Boogie's in My Soul
RETRO STEFSON - Fram á nótt
ELVAR - Miklu betri einn
LUIGI, MARON BIRNIR - Berdreymi
ROYEL OTIS - Moody
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Hvar er draumurinn?
KRULLUR - Segðu mér satt
BUBBI MORTHENS - Ég er tilbúinn
SEXTETT ÓLAFS GAUKS - Segðu ekki nei
QUARASHI - Stick'em up
SHERYL CROW - All I Wanna Do
COUNTESS MALAISE - All I think about is (Explicit)
IZLEIFUR, ELÍN HALL - Hugsa alltof mikið um þig
OPUS - Live Is Life
THE CLASH - Should I Stay Or Should I Go
VORMENN ÍSLANDS - Átján rauðar rósir
CALVIN HARRIS - Feels (ft. Pharrell, Katy Perry & Big Sean)
BLUR - The universal
SAINT PETE - Superman