Helgarútgáfan

Mikael Kaaber mælir með, Dýrfinna frá Hamraborg og Akureyrarvaka

Helgarútgáfan heilsaði upp úr hádegi á kjördegi. Aðalgestur þáttarins var hinn ungi og stórefnilegi leikari Mikael Emil Kaaber. Það stendur mikið til hjá honum á næstunni, við fengum af því fregnir á dögunum hann verði í teyminu sem færa mun okkar þjóðinni Áramótaskaupið í ár. Mikael er einnig frumsýna ásamt góðum hópi glænýja íslenska kvikmynd í næstu viku, mynd sem heitir Hvar er draumurinn? og er söngleikjakvikmynd eins konar og byggð utan um lög og texta Sálarinnar hans Jóns míns. Við spurðum hann út í þetta allt saman en við fengum líka fáein stórskemmtileg meðmæli hjá honum í Meðmælasúpunni góðu.

Líkt og endranær þá skimuðum við yfir úrval viðburða helgarinnar og tökum í framhaldi upp símann í leiðinni. Við slógum á þráðinn til Elísabetar Agnar Jóhannsdóttur á Akureyri en þar stóð yfir Akureyrarvaka þessa helgina. Svo fengum við heyra allt um Hamraborgarfestival í Kópavogi þegar Dýrfinna Benita Basalan leit við og sagði okkur frá hátíðinni og frá tónlistarverkefni sínu, Countess Malaise.

Hjörvar Hjörleifsson gaf út plötu í sumar og útgáfutónleikar voru fram undan. Við fengum póstkort frá Hjörvari.

Það var auðvitað kjördagur þennan daginn og þjóðin hafði fylgst með baráttu beggja fylkinga síðustu vikurnar. Alls konar frasar fengu fjúka en þó ekki einhver stuðningsmannalög. Hlustendur voru spurðir um skemmtileg baráttu- og stuðningslög sem hæfðu þessum fína laugardegi og útkoman var þessi í bland við það ferskasta og vinsælasta.

Á MÓTI SÓL - Hvar sem ég fer

LOGI PEDRO - Englar alheimsins

MARSIBIL - Allir slakir

WARMLAND - Violet Dreams

THE CARDIGANS - Lovefool

HOWARD JONES - What Is Love?

STEINUNN JÓNSDÓTTIR - Spóla til baka

ELDFUGLINN - Eldfuglinn

ERLING ÁGÚSTSSON - Við gefumst aldrei upp

CHAKA KHAN, SNOOP DOGG - Boogie's in My Soul

RETRO STEFSON - Fram á nótt

ELVAR - Miklu betri einn

LUIGI, MARON BIRNIR - Berdreymi

ROYEL OTIS - Moody

SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Hvar er draumurinn?

KRULLUR - Segðu mér satt

BUBBI MORTHENS - Ég er tilbúinn

SEXTETT ÓLAFS GAUKS - Segðu ekki nei

QUARASHI - Stick'em up

SHERYL CROW - All I Wanna Do

COUNTESS MALAISE - All I think about is (Explicit)

IZLEIFUR, ELÍN HALL - Hugsa alltof mikið um þig

OPUS - Live Is Life

THE CLASH - Should I Stay Or Should I Go

VORMENN ÍSLANDS - Átján rauðar rósir

CALVIN HARRIS - Feels (ft. Pharrell, Katy Perry & Big Sean)

BLUR - The universal

SAINT PETE - Superman

Birt

29. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær hljóma.

Þættir

,