Helgarútgáfan

Árni Vil og Ragnhildur úr FLOTT í súpunni og sungið til mæðra

Helgarútgáfan lagði af stað af gömlum vana hádegisfréttum loknum. 9. maí mættur og vorið farið banka hressilega upp á víðast hvar. Kristján Freyr hélt um stýrið, skrunaði yfir það helsta sem á seyði var þessa helgina, tók á móti skemmtilegum gestum og spilaði skemmtilega tónlist. Annar sunnudagur í maí fram undan og þá er iðulega mæðradagur. Þó svo auðvitað allir dagar séu mæðradagar þá er þessi dagur haldinn til heiðurs mæðrum. Helgarútgáfan heiðraði mæður með lagavali dagsins.

Svo var það Meðmælasúpan góða en fjöllistamaðurinn Árni Vilhjálmsson, sem hefur meðal annars gert vel með vinum sínum í leikhópnum Kriðpleir upp á síðkastið, var áður í FM Belfast, gefið út sólótónlist og fengist við myndlist einnig - og tónlistarkonan stórefnilega Ragnhildur Veigarsdóttir sem semur meira og minna megnið af þeim frábæru lögum sem hljómsveitin FLOTT hefur gefið út síðustu misseri og er jafnframt höfundur tónlistarinnar í þáttunum 20 og eitthvað sem eru slá í gegn hér á RÚV um þessar mundir ... ættu eldhress í súpuna þessu sinni.

Þau gáfu af sér hver meðmælin fætur öðrum og ræddu meðal annars um suðu á eggjum í 6.20 mín., norsku þættina um Berit, Love on the Spectrum og kvikmyndina Dig! XX um sveitirnar The Dandy Warhols og The Brian Jonestown Massacre. Úr eldhúsinu var helst rætt um steiktan fisk í raspi, veitingastaðina Tíu sopa og Skál! í miðborg Reykjavíkur og heimalagað Bolognese. Loks voru ræddar bækur um leikarann sáluga Matthew Perry og listamanninn Stefán Jóonsson frá Möðrudal eða Stórval.

Hér er svo hinn fallegi meðralagalisti í bland við annað skemmtilegt:

POSSIBILLIES - Móðurást

PAUL SIMON - Mother And Child Reunion

BRÍET - Takk fyrir allt

ROLLING STONES - Mother's Little Helper

FLOTT - Tuttugu og eitthvað

FRIÐRIK DÓR - Aftur ung (Dansaðu við mig)

ÁRNI VIL - Afternoons

SADE - Kiss of life

ASSOCIATION - Never My Love

SKÚLI MENNSKI - Mamma fílar rokk og ról

ÐE LÓNLÍ BLÚ BOJS - Mamma grét

EGÓ - Móðir

MINNIE RIPERTON - Lovin' You

BUFF & Á MÓTI SÓL - Mamma gefðu mér grásleppu

KRÓLI - Kókómjólk

LENNY KRAVITZ - Always on the run

KLAUFAR - Huggun harmi gegn

MAMMAÐÍN - Frekjukast

BOTNLEÐJA - Heima er best

QUEEN - Bohemian Rhapsody

Birt

9. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær hljóma.

Þættir

,