Helgarútgáfan

Gleði í kortunum, Guðjón Þorgils með meðmæli og nýtt frá Spacestation

Helgarútgáfan var á sínum stað hádegisfréttum loknum og Kreistján Freyr sneri aftur eftir nokkurra vikna frí. venju litum við á allt það helsta sem dreif á daga þjóðar þessa helgina og ljóst lítið var um verslunarmannahelgarþreytu. Í Reykjavík náði Hinsegin dagar hámarki með gleðigöngu en einnig var talsvert um aðrar hátíðir víða um land.

Hinn ungi og efnilegi söngvari Guðjón Þorgils Kristjánsson sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna fyrr í vor og sigraði hjörtu landsmanna um leið, hann flytur lag Hinsegin daga í ár sem heitir Fram á við. Og áður en Guðjón tróð upp á stóra sviðinu í Gleðigöngunni í Hljómskálagarði í Reykjavík mætti hann í Helgarútgáfuna í spjall þar sem hann meðal annars deildi með okkur frábærri meðmælasúpu.

Galgoparnir í hljómsveitinni Spacestation gáfu út nýtt lag þessa helgina og Helgarútgáfan frumflutti. Aukinheldur komu Davíð Þór og Björgúlfur Jes vopnaðir gítar og trumbu og léku þeir við hvern sinn fingur í beinni. Hljómsveitin Spacestation verður meðal þeirra sem leika á Tónaflóði Rásar 2 við Arnarhól á Menningarnótt.

Lagalistinn kallaðist ágætlega á við gleðigönguna og innihélt ýmsa gleði:

MOSES HIGHTOWER - Lífsgleði

UNA TORFA - Þú ert stormur (Pride lagið 2023)

MANNAKORN - Víman

STEBBI JAK - Dönsum inn í hljóða nótt

ICEGUYS - 7-9-13

TAYLOR SWIFT - I Knew It I Knew You

CAAMP - Mistakes

RETRO STEFSON - Skin

GUÐJÓN ÞORGILS - Framávið (Lag Hinsegin daga 2026)

STJÓRNIN - Láttu þér líða vel

SHAKIRA, BURNA BOY - Dai Dai

STEFÁN HILMARSSON - Þrátt fyrir allt

REBEKKA BLÖNDAL - Kveðja

WARMLAND - Violet Dreams

SPACESTATION - Lightspeed

JET - Look What You've Done

WINGS - Let 'em In

ALDOUS HARDING - Venus in the Zinnia

PRINS PÓLÓ - Niðri á strönd

REVEREND AND THE MAKERS - Heatwave In The Cold North

FLOTT - 20 og eitthvað

BJÖRN JÖRUNDUR - Tíðhnit

YUNGAMLI - Pungur á klúbbnum

THE CURE - Why Can't I Be You?

TALKING HEADS - Road To Nowhere

ACE OF BASE - Beautiful life

MADONNA - Beautiful Stranger

LUIGI, MARON BIRNIR - Berdreymi

TAME IMPALA - Dracula

SANTIGOLD - Disparate Youth

CALVIN HARRIS, JAZZY - Satisfy

OLIVIA DEAN - So Easy (To Fall In Love)

NELLY - Hot In Here

Birt

8. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær hljóma.

Þættir

,