• 00:52:25Ensími í heimsókn
  • 01:15:10Lilja Alfreðsdóttir í Meðmælasúpu
  • 02:02:25Sveitaballastemningin í algleymi

Helgarútgáfan

Leyft öllum aldurshópum

Margs konar meðmæli Lilju Alfreðs, Ensími og sveitaballastemning

Helgarútgáfan mætti galvösk eftir hádegisfréttir og fram undan var eins konar sveitaball. Kannski voru réttir víða um land sem kveikti þann áhuga í samvinnu við hlustendur voru ýmis sveitaböll rifjuð upp og tónlistin var eftir því mjög svo fjörug. Auðvitað í bland við það ferskasta.

Við fengum einnig lúsxusskammt af Meðmælasúpu þegar Lilja Dögg Alfreðsdóttir, fyrrum ráðherra menningar og núverandi formaður Framsóknarflokksins, mætti til okkar í spjall. Þar ræddum við hennar smekk í tónlist, bókum, leikhúsi, mat og öðru. Þar kenndi ýmissa grasa, allt frá hægelduðu lambalæri, Laxness, Laufeyju Lín og til ósýnilegs Luftgítars.

Við kíktum svo á allt það helsta sem fram undan var í mannlífinu og menningunni og í framhaldi kíktu þeir Franz Gunnarson og Hrafn Thoroddsen úr Ensími í kaffi. Sú vaska sveit fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og spila næstu helgi í Austurbæ í Reykjavík ásamt belgísku hljómsveitinni dEUS.

Hér er svo sveitaballastemning dagsins:

STEFÁN HILMARSSON - Líf

UPPLYFTING - Traustur vinur

STUÐMENN - Gógó Partý

U2 - I Will Follow

KRISTMUNDUR AXEL, BUBBI MORTHENS - Kominn heim

SPILVERK ÞJÓÐANNA - Veðurglöggur

SPILVERK ÞJÓÐANNA - Styttur bæjarins

ARON CAN - Fæddur til þess að vera þinn

SKÍTAMÓRALL - Þú veist hvað ég meina mær

ENSÍMI - Atari

DEUS - Via

Ensími - In front

HERRA HNETUSMJÖR, JÓN JÓNSSON - Las á milli línanna

JOHNNY TRIUMPH & SYKURMOLARNIR - Luftgítar

LAUFEY - Lover Girl

FRIÐRIK DÓR, SINFONIA NORD - Hvað er það versta sem gæti gerst?

MICHIGANDER - Freaking Out

TEITUR MAGNÚSSON - Askur

BUTTERCUP - Endalausar nætur

TODMOBILE - Stopp

GREIFARNIR - Útihátíð

PULP - Disco 2000

KACEY MUSGRAVES - I Believe In Ghosts

BÍTLAVINAFÉLAGIÐ - Danska lagið

STJÓRNIN - Utan úr geimnum

SKRIÐJÖKLAR - Aukakílóin

BRIMKLÓ - Eitt lag enn

PAPAR - Jameson

SÍÐAN SKEIN SÓL - Halló, ég elska þig

SÓLDÖGG - Friður

SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Sódóma

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Þættir

,