Helgarútgáfan sló taktinn með þjóðinni líkt og endranær á laugardögum. Kristján Freyr var með puttann á púlsinumþegar kom að menningu og mannlífi, góðir gestir mættu með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist var í fyrirrúmi.
Í Meðmælasúpu dagsins mættu þau Birgitta Birgisdóttir leikkona og leikstjóri og Kristófer Dignus kvikmyndaleikstjóri og framleiðandi. Það var afar margt og mikið sem þau buðu upp á, allt verulega forvitnilegt. Monster á Netflix, Keep Sweet: Pray and obey, The Pitt, bækurnar Ósmann og Morðin í Dillonshúsi (sem Birgitta las inn í hljóðbókaformi), French Touch Café í Bolungarvík og Snaps í Þingholtunum í Reykjavík og svo þættirnir 20 og eitthvað á RÚV sem eru í leikstjórn Kristófers Dignus.
Sumarið er auðvitað loks komið og það sem gleður helst er gróðurinn, plönturnar og blómin. Allt að verða fallega grænt. Því var spurt um lög sem tengjast einhverju úr plönturíkinu? Hér er lagalistinn:
SSSól - Ég sé epli
FOUNDATIONS - Build Me Up Buttercup
BUTTERCUP - Endalausar nætur
HJÁLMAR - Blómin í brekkunni
TRAVIS - Flowers In The Window
MILEY CYRUS - Flowers
BUBBI MORTHENS - Við föllum
SPILVERK ÞJÓÐANNA - Plant No Trees
JONI MITCHELL - Big Yellow Taxi
OJBA RASTA - Baldursbrá
THE POLICE - Every Little Thing She Does Is Magic
PRESIDENTS OF THE UNITED STATES OF AMERICA - Peaches
ÞORMÓÐUR, MARON BIRNIR - Stoppa tímann
VINIR VORS OG BLÓMA - Frjáls
NÝDÖNSK - Kirsuber
SIMON AND GARFUNKEL - Scarborough fair / Canticle
STONE ROSES - Elizabeth my dear
R.E.M. - Orange Crush