Helgarútgáfan hóf leika að hádegisfréttum loknum þennan laugardaginn sem endranær. Sjómannadagur fram undan og stórtónleikar afmælsibarns dagsins, Bubba Morthens, einnig. Þetta tvennt litaði á nokkurn hátt lagalista dagsins.
Tónlistarkonan Ólöf Arnalds gaf út plötuna Spíru í upphafi árs og þennan laugardag voru einnig útgáfutónleikar hennar fram undan. Ólöf var gestur í Meðmælasúpu þáttarins og nefndi mjög fjölbreytta sem og framandi hluti okkur til gagns og gamans. Tælenska tónlistarkonan Ream Duranoi kom við sögu, samloka með geitaosti hjá Systrasamlaginu, Fear no Man hlaðvarp um sögu Fela Kuti, upplífgandi útskriftaræður ungs fólks á Youtube og fleira góðgæti. Óhætt er að mæla með hlustun á upptalninguna og auðvitað plötu Ólafar einnig.
Hér er lagalisti dagsins 06.06.26 og Bubba Morthens er hér óskað til hamingju með 70 árin.
PRINS PÓLÓ - París Norðursins
BUBBI - Aldrei fór ég suður
SPILVERK ÞJÓÐANNA - Nei sko
BANG GANG - Stop in the name of love
DAÐI FREYR - Hot damn
REAM DURANOI - Fai Yen
WEEZER - Island In The Sun
ÓLÖF ARNALDS - Heimurinn núna
ROYEL OTIS - Moody
THE STONE ROSES - Fools Gold
HAUKAR - Fiskurinn hennar Stínu
THE BEACH BOYS - Kokomo
BUBBI - Háflóð
BILLY OCEAN - When The Going Gets Tough,The Tough Get Going
DURAN DURAN - Rio
JÓNAS SIG & LÚÐRASVEIT ÞORLÁKSHAFNAR - Hafið er svart
SEALS & CROFTS - Summer Breeze
BRIMKLÓ - Síðasta sjóferðin
LJÓTU HÁLFVITARNIR - Lukkutroll
LYKKE LI - I Follow Rivers