Helgarútgáfan hossaðist af stað að hádegisfréttum loknum og var ögn sumarlegri gír en áður. Sólin skein á allflesta landsmenn og konur og góður bragur almennt á fólki. Góðir gestir mættu í Meðmælasúpuna eins og endranær, þau Júlí Heiðar og Steinunn Jónsdóttir úr Reykjavíkurdætrum og Amabadama og ekki komu þau tómhent, heldur með fulla vasa af meðmælum sem og glænýrri tónlist einnig.
Steinunn frumflutti lagið Spóla til baka sem inniheldur smá endurlit til skemmtistaðarins Hemma og Valda sem var og hét við Laugaveg. Við fengum meðmæli með Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sem og Grasagarðinum, gúllassúpu, þáttunum Rivals og The Witness og auðvitað íslenska sumrinu. Loks heyrðum við einnig frumflutning á stuðningsmannalaginu Jötuninn rís eftir Júlí sem hann samdi fyrir lið Ægis í Þorlákshöfn.
Við hringdum einnig í leikarann Halldór Gylfason sem er á leið í sumarfrí. Dóri átti afmæli og var í óða önn að undirbúa útskriftarveislu dóttur sinnar.
Loks var það lagavalið sem snerist að þessu sinni um ábreiður og hlustendur tóku afar virkan þátt í lagalista dagsins.
PÁLL ÓSKAR & UNUN - Ástin dugir
SYKURMOLARNIR - Top Of The World
JÚLÍ HEIÐAR, RAGGA HOLM - Líður vel
JET BLACK JOE - Starlight
NO DOUBT - It's My Life
STJÓRNIN - Nei eða Já
ROYEL OTIS - Murder on the Dancefloor
JOHN GRANT - Ástarsorg
RAGGI BJARNA OG MILLJÓNAMÆRINGARNIR - Smells Like Teen Spirit
OF MONSTERS AND MEN - Ordinary Creature
DANIIL, FRUMBURÐUR - Bráðna
KAKTUS - Glycerine
PÁLL ÓSKAR - Betra líf
AMABADAMA - HossaHossa
ELLA FITZGERALD - In a Sentimental Mood
STEINUNN JÓNSDÓTTIR - Spóla til baka
JÚLÍ HEIÐAR - Jötuninn rís
MARK RONSON feat. AMY WINEHOUSE - Valerie
JÚLÍ HEIÐAR, DÍSA - Cha cha cha
HJÁLMAR, MR. SILLA - Er hann birtist
MOTÖRHEAD - Heroes
CHEMICAL BROTHERS - Go ft. Q-Tip
EMILIANA TORRINI - Tvær stjörnur
THE CLASH - I Fought The Law
OLIVIA DEAN - So Easy (To Fall In Love)
JÚNÍUS MEYVANT - Ástarsæla