• 01:04:30Júlí Heiðar og Steinunn setjast að súpunni
  • 02:21:02Halldór Gylfason á leið inn í sumarið

Helgarútgáfan

Júlí og Steinunn sátu í súpu, Dóri Gylfa og dúndrandi ábreiður

Helgarútgáfan hossaðist af stað hádegisfréttum loknum og var ögn sumarlegri gír en áður. Sólin skein á allflesta landsmenn og konur og góður bragur almennt á fólki. Góðir gestir mættu í Meðmælasúpuna eins og endranær, þau Júlí Heiðar og Steinunn Jónsdóttir úr Reykjavíkurdætrum og Amabadama og ekki komu þau tómhent, heldur með fulla vasa af meðmælum sem og glænýrri tónlist einnig.

Steinunn frumflutti lagið Spóla til baka sem inniheldur smá endurlit til skemmtistaðarins Hemma og Valda sem var og hét við Laugaveg. Við fengum meðmæli með Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sem og Grasagarðinum, gúllassúpu, þáttunum Rivals og The Witness og auðvitað íslenska sumrinu. Loks heyrðum við einnig frumflutning á stuðningsmannalaginu Jötuninn rís eftir Júlí sem hann samdi fyrir lið Ægis í Þorlákshöfn.

Við hringdum einnig í leikarann Halldór Gylfason sem er á leið í sumarfrí. Dóri átti afmæli og var í óða önn undirbúa útskriftarveislu dóttur sinnar.

Loks var það lagavalið sem snerist þessu sinni um ábreiður og hlustendur tóku afar virkan þátt í lagalista dagsins.

PÁLL ÓSKAR & UNUN - Ástin dugir

SYKURMOLARNIR - Top Of The World

JÚLÍ HEIÐAR, RAGGA HOLM - Líður vel

JET BLACK JOE - Starlight

NO DOUBT - It's My Life

STJÓRNIN - Nei eða

ROYEL OTIS - Murder on the Dancefloor

JOHN GRANT - Ástarsorg

RAGGI BJARNA OG MILLJÓNAMÆRINGARNIR - Smells Like Teen Spirit

OF MONSTERS AND MEN - Ordinary Creature

DANIIL, FRUMBURÐUR - Bráðna

KAKTUS - Glycerine

PÁLL ÓSKAR - Betra líf

AMABADAMA - HossaHossa

ELLA FITZGERALD - In a Sentimental Mood

STEINUNN JÓNSDÓTTIR - Spóla til baka

JÚLÍ HEIÐAR - Jötuninn rís

MARK RONSON feat. AMY WINEHOUSE - Valerie

JÚLÍ HEIÐAR, DÍSA - Cha cha cha

HJÁLMAR, MR. SILLA - Er hann birtist

MOTÖRHEAD - Heroes

CHEMICAL BROTHERS - Go ft. Q-Tip

EMILIANA TORRINI - Tvær stjörnur

THE CLASH - I Fought The Law

OLIVIA DEAN - So Easy (To Fall In Love)

JÚNÍUS MEYVANT - Ástarsæla

Birt

13. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær hljóma.

Þættir

,