Helgarútgáfan

Leyft öllum aldurshópum

Lára og Valdimar sátu í súpunni og lög frá tríóum

Helgarútgáfan hóf leika að hádegisfréttum loknum. Tónlistin einkenndist af tríóum ýmsum úr sögu dægurtónlistarinnar, bæði hér heima og heiman. Að venju tóku hlustendur þátt og sendu inn prýðishugmyndir sem höfðu áhrif á lagavalið. Eins og endranær var skrunað yfir allt það skemmtilega sem var á sveimi í menningu og mannlífi þessa helgina, það er alltaf nóg um að vera.

Svo var það Meðmælasúpan góða sem var á sínum stað en þau Lára Jóhanna Jónsdóttir leikkona og stórsöngvarinn Valdimar Guðmundsson gáfu þá heldur betur af sér og deildu með hlustendum mörgu sem hægt er að gæða sér á. Meðal þess sem var rætt var kvikmyndin Wicked Little Letters af Netflix, verðlaunamyndin Hamnet, indverskar kræsingar Austur-Indía félagsins, bækurnar Wisdom of Your Body eftir Hillary McBride, Frumbyrjur Dags Hjartarsonar og Mort eftir Terry Pratchett, tónlist frá Cameron Winter og Sofie Tukker að ógleymdri uppskrift að salatdressingu sem Lára gæðir sér á í tíma og ótíma. Hér er uppskriftin:

Tahini (sesamsmjör)

ólífuolía

Dijon sinnep

sítrónusafi

salt

Hér er svo lagalistinn:

KK BAND - Besti vinur

STUÐMENN - Betri tíð

LÓN - Hours

CHAPPEL ROAN - Pink Pony Club

BOTNLEÐJA - Þið eruð frábær

THE POLICE - Walking on the moon

ÁRNÝ MARGRÉT - Hakk og spaghettí

SOFI TUKKER - Purple Hat

CAMERON WINTER - Love Takes Miles

KK - Lífið er

200.000 NAGLBÍTAR - Neðanjarðar

CALVIN HARRIS - Feels (ft. Pharrell, Katy Perry & Big Sean)

KARL ORGELTRÍÓ, RAGNAR BJARNASON - Happy hour

TRÍÓ JÓNS LEIFSSONAR - Hver er galdurinn

THE WOMBATS - Moving To New York

GÓSS - Sólarsamba

HVANNDALSBRÆÐUR - LaLa lagið

BEE GEES - Nights On Broadway

NIRVANA - Smells Like Teen Spirit

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær hljóma.

Þættir

,