Helgarútgáfan var auðvitað á sínum stað að hádegisfréttum loknum á laugardegi, sem endranær. Við hringdum á Patreksfjörð sem er eins konar heimavöllur sjómannadagsgleðinnar á Íslandi og hún Guðrún Anna Finnbogadóttir, sem starfar meðal annars hjá Vestfjarðastofu, gat sagt okkur allt um þessa ríku hefð sem nær til ársins 1939.
Við tókum einnig púlsinn á Kjartani Björnssyni, rakara og æstum Arsenal áhanganda á Selfossi en Arsenal var rétt í þann mund að hefja viðureign sína við Paris Saint Germain í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Kjartan var spenntur, fullur tilhlökkunar en einnig af auðmýkt. Hann lofaði í beinni útsenedingu að fá sér húðflúr ef Arsenal skyldi sigra.
Og í Meðmælasúpuna mætti Hafsteinn Þráinsson tónlistarmaður sem kenndur er m.a. við Ceasetone og Pílu og margt annað svo sem. Algjört tónlistarséní. Hann sagði okkur skemmtilegar sögur og mælti með Ormstungu í Þjóðleikhúsinu, bókum Brandon Sanderson, Stormlight Archive, kínverskum veitingastað í miðborg Reykjavíkur og tónlistarkonunni Madison Cunningham.
Þema dagsins í tónlistinni var einfaldlega laugardagur! Það kom margt gott úr því:
BOGOMIL FONT & MILLJÓNAMÆRINGARNIR - Marsbúa chacha
CEASETONE - The Bright Side
THE STROKES - Going Shopping
CHICAGO - Saturday In The Park
BEYONCÉ - Break my soul
THE JACKSONS - Blame It On The Boogie
CEASETONE - Á tónaflóði
PÍLA - Annað líf
BJARTMAR GUÐLAUGSSON - Stúdentshúfan
DEACON BLUE - Fergus Sings the Blues
GUS GUS - Eða?
SKÍTAMÓRALL - Fljúgum áfram
ELTON JOHN - Saturday Night's Alright For Fighting
PHIL OAKLEY AND GIORGIO MORODER - Together In Electric Dreams
GREEN DAY - Basket Case
TRABANT - The One (The Filthy Duke Remix)
MADONNA - La Isla Bonita