Það voru fastir liðir eins og venjulega í Helgarútgáfu þessa laugardags, góðir gestir mættu í Meðmælasúpuna góðu en tónlistin var einnig valin í góðu samráði við hlustendur Rásar 2 sem sendu sínar óskir og tillögur á samfélagsmiðlum og í gegnum síma. Óskarsverðlaunahátíðin var þarna fram undan og hlustendur beðnir um tillögur að eftirminnilegum lögum úr kvikmyndum íslenskum sem og erlendum.
Meðmælasúpan var nú kokkuð af gestum sem eru öllu vanir úr eldhúsi. Það voru matgæðingarnir þau Guðný Ljósbrá Hreinsdóttir, sem er skráð sem súkkulaðifræðingur á Já.is og Arngrímur Fannar Haraldsson eða Addi Fannar úr Skítamóral sem er nú einnig veitingamaður með sinni ektafrú Yasmine Olsson þessa dagana, á staðnum Funky Bhangra. Þau voru endalaust skemmtileg og meðmælin þeirra úr mörgum áttum; tónleikamynd Baz Luhrmann um Elvis, Heated Rivalry um íshokkí og ástir, omakase matseld, Ólöfu eskimóa, Í ljósi sögunnar og hlaðvarpið Criminal með Phoebe Judge.
Að venju var putti settur á púlsinn í menningu og mannlífi helgarinnar en tónlistin var í forgrunni. Hún var mjög skemmtileg!
Frá 12:45:
AMABADAMA - AI AI AI
ROXY MUSIC - Let's stick together
JOE COCKER & JENNIFER WARNES - Up Where We Belong
ALORIAN, ALASKA 1867, GROSS - Týnda kynslóðin
MUGISON - Little Trip To Heaven
RAYE - WHERE IS MY HUSBAND!
GEORGE BAKER SELECTION - Little Green Bag
EDDA HEIÐRÚN BACHMANN - Önnur Sjónarmið
Frá 14:05:
ÁRNÝ MARGRÉT - Hakk og spaghettí
IZLEIFUR, ELÍN HALL - Hugsa alltof mikið um þig
BUBBI MORTHENS - Skyttan
hOFFMAN - Fallbeygðu mig
ROYEL OTIS - Moody
MY MARIANNE & WILL FERRELL - Husavik (My Hometown)
ELTON JOHN - Goodbye Yellow Brick Road
KENNY LOGGINS - Footloose
LAUFEY - From The Start
Dina Ögon - Mormor
THE SWELL SEASON - Falling Slowly.
Frá 15:05:
ANDRI ÞÓR HJARTARSOON, RAVEN - Silfurhjarta
A-HA - The Living Daylights
WHEATUS - Teenage Dirtbag
KENNY LOGGINS - Danger zone
FRANKIE VALLI - Can't Take My Eyes Off You
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Sódóma
IRENE CARA - Flashdance...What A Feeling
STUÐMENN - Taktu til við að tvista
BILL MEDLEY, JENNIFER WARNES - (I've Had) The Time Of My Life