Helgarútgáfan flaug í loftið eftir hádegisfréttunum og við tók gæðatónlist og gestalisti góður. Í Meðmælasúpuna mína góðu mættu þau Eiður Arnarsson bassaleikari og viðskiptastjóri í Hörpu, tónlistarhúsi okkar allra, Eiður er einnig fyrrum plötuútgefandi og það var svo glettilega alþjóðlegur dagur plötubúðanna þennan dag. Og til þess að spjallið yrði enn þá skemmtilegra kom hún Kristjana Stefánsdóttir tónlistarkona til okkar einnig. Úr varð afar bragðmikil súpa sem vert er að mæla með.
Það var verulega gestkvæmt þennan daginn, meira en endranær. Hin dásamlega Hammondhátíð á Djúpavogi fagnar 20 árum í ár og hefst sumardaginn fyrsta. Einn þeirra sem þar kemur fram heitir Kristján Ingimarsson og er heimamaður, sumsé frá Djúpavogi. Kristján mætti með þá Pálma Sigurhjartarson og Þorgils Björgvinsson úr Sniglabandinu með sér. Og ekki var gestalistinn þar með fullur því 12 ára gamla söngstirnið Alex Óli, sem hefur vakið mikla athygli upp á síðkastið fyrir hæfileika sína, leit við en hann var að gefa út sín fyrstu lög á streymisveitu núna í byrjun apríl. Þetta var því pakkfullur þáttur af skemmtilegheitum.
Eins og nefnt var þá var alþjóðlega plötubúðardeginum fagnað þennan daginn og tónlistin valin með aðstoð hlustenda. Spurt var hvort fólk myndi eftir fyrstu hljómplötunni sem þau eignuðust og fjölmörg skemmtileg svör bárust.
Hér er lagalisti þáttarins:
STJÓRNIN - Þegar sólin skín
LILY ALLEN - Ldn
U2 - Angel Of Harlem
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON OG MEMFISMAFÍAN - Þitt auga
AMABADAMA - AI AI AI
JÓIPÉ, KRÓLI, USSEL - 7 símtöl
TOTO - Rosanna
ABBA - When I kissed the teacher
FLOTT - Tuttugu og eitthvað
QUEEN - Tie your mother down
HREIMUR, DILJÁ PÉTURSDÓTTIR - Svona var lífið
ALEX ÓLI - Himinn og jörð
TOM JONES - Delilah
THE BLACK KEYS, DANNYLUX - Mi Tormenta
VÆB - Sama hver það er
RAY PARKER JR.. - Ghostbusters
THE STROKES - Someday