Helgarútgáfan heilsaði á þessum fína laugardegi, 21. febrúar. Það er síðasti laugardagur þorrans og konudagur á morgun, fyrsti dagur Góu og því lékum við tónlist þar sem konur eru í forgrunni. Hlustendur tóku virkan þátt í tónlistarvalinu eins og svo gjarnan í þessum þætti.
Þær Embla Rún Hall, sem er mikill bókabéus og starfsmaður á kaffihúsi og hún Salóme Katrín Magnúsdóttir tónlistarkona og nemandi í tónsmíðum voru gestir í Meðmælasúpunni. Þær átu sannarlega ekki erfitt með að gefa af sér þegar kom að meðmælum og voru bíómyndirnar Dís og Return to Oz, dans í Kramhúsinu, Sólgos eftir Arndísi Þórarinsdóttur, indverskur matur og margt fleira sem bar helst á góma.
Eins og endranær var hlaupið yfir menningu og mannlíf helgarinnar og við heyrðum í Ágústi Braga Daðasyni á Egilsstöðum sem sagði okkur allt af nýrri sýningu Menntaskólans á Egilsstöðum. Það er sýningin Fyrsti kossinn sem inniheldur tónlist eftir Rúnar Júlíusson heitinn.
Drekkhlaðin Helgarútgáfa af dásamlegu spjalli og dvínandi góðri tónlist.
Frá kl. 12:45
ÍRAFÁR - Ég sjálf
SALÓME KATRÍN - Elsewhere
BANGLES - Walk Like an Egyptian
HALLI OG LADDI - Ég pant spila á gítar mannanna
BEYONCÉ - Break my soul
NIRVANA - About a girl
KATE BUSH - Hounds Of Love
Frá kl. 14:05
GRAFÍK - Prinsessan
AURORA - The Seed
SKUNK ANANSIE - Hedonism
KIRIYAMA FAMILY - Pleasant ship
UNA TORFA, CEASETONE - Þurfum ekki neitt
DOLLY PARTON - Jolene
Gossip - Heavy Cross
ELIZA NEWMAN - Þú veist
Frá kl. 15:05
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON & RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR - Ég gef þér allt mitt líf
PAT BENATAR - We belong
ROBYN - Dopamine
LANA DEL REY - Video Games
MINNIE RIPERTON - Les Fleurs
FLEETWOOD MAC - Rhiannon
BJÖRK - It's Oh So Quiet
CMAT - Running/Planning
ELASTICA - 2:1
VÉDÍS - Blow My Mind
SIA - Elastic Heart