Helgarútgáfan

Afmælistónleikar Ingimars Eydal. meðmælasúpa, bíóparadís og Óli Egils í óperuna.

Við byrjuðum Helgarútgáfuna að þessu sinni á því að hringja norður og heyra í Ólafi Egilssyni sem er leikstjóri nýrrar sýningar íslensku óperunnar sem markar upphaf að starfári óperunnar. Við heyrðum í Ásu Baldursdóttur dagskrárstjóra í Bíó Paradís um norræna veislu sem þar er í gangi. Páll Heiðar Pálsson fasteignasali kom í Meðmælasúpuna og Inga Eydal dóttir tónlistarmannsins Ingimars Eydal kom og sagði frá afmælistónleikum sem haldnir eru í minningu Ingimars bæði í Hörpu og Hofi. Að lokum leit Guðmundur Pálsson inn nefið og sagði frá Landsleikunum sem eru á dagskrá Ruv í kvöld.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Þættir

,