Fram og til baka

Töðugjöld á Hellu og hátíðir um land allt

Fram og til baka tyllti niður fæti á Töðugjöldum á Hellum í þætti dagsins en Felix hitti gesti og gangandi í Íþróttahúsinu þar sem samfélaginu var boðið í morgunmat í tilefni af hátíðinni. Hafdís Sigurðardóttir Söring og Eiríkur V Sigurðsson settust hjá honum í spjall. Við heyrðum líka í Unni Birnu Bassadóttur sem tekur þátt í Blómstrandi dögum í Hveragerði og Nanna Guðrún hringdi í Kára Viðarsson á Hellissandi en þar stendur yfir mikil sólmyrkvahátíð. lokum skoðuðu umsjónarmenn kvikmyndir sumarsins og hámhorf haustsins með kvikmyndablaðamanninum Oddi Ævari Gunnarssyni.

Birt

15. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Þættir

,