Fram og til baka

Ódysseifskviða og Bræðslan á Borgarfirði Eystri

Í þætti dagsins voru umsjónarmennirnir Felix og Nanna á sitt hvorum enda landsins. Nanna var á sínum stað í Efstaleitinu en Felix var staddur á Borgarfirði Eystri þar sem Bræðslan fer fram um helgina. Þangað fékk hann til sín góða gesti. Hann ræddi við Ásgeir Heiðar Áskelsson, skipuleggjanda Bræðslunnar og Jódísi Skúladóttur, fyrrverandi þingmann og formann Hinsegin hátíðarinnar á Austurlandi sem fer fram þessa dagana.

Þá komu ekki síður góðir gestir í hljóðverið í Efstaleitinu. Þangað fékk Nanna til sín Sigrúnu Mathiesen, kvikmyndagerðarkonu sem sagði frá upplifun sinni af setti á tökum á kvikmyndinni The Odyssey sem var hluta til tekin upp hér á landi. Strákarnir í Múr kíktu við og töluðu um væntanlegt tónleikaferðalag en þeir eru einnig troða upp á lokakvöldi hátíðarinnar Rokk í Reykjavík í kvöld. lokum slógu umsjónarmenn á þráðinn hjá tónlistarmanninum Ásgeiri sem var einmitt á leið austur þar sem hann ætlar koma fram á Bræðslunni.

Birt

25. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Þættir

,