Fram og til baka

Fram og til baka í Taiwan

Fram og til baka er víðförull þáttur og í þessari sérstöku páskaútgáfu tyllum við niður fæti í höfuðborg Tævan, Taipei. Felix Bergsson segir okkur af upplifun sinni af þessari mögnuðu eyju og fólkinu sem þar býr.

Gestur þáttarins, Þorsteinn Kristinsson stjórnmálafræðingur, býr einmitt í Taipei ásamt eiginkonu og nýfæddum syni. Þorsteinn, eða Stenni eins og hann er yfirleitt kallaður, segir okkur af sjálfum sér, uppvextinum í Hafnarfirði og lífinu í Taiwan en víkur einnig áhugaverðri sögu landsins, sambandinu við Kína og stjórnmálunum.

Komið með þegar við flökkum í orðsins fyllstu merkingu fram og til baka

Birt

4. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Þættir

,