Fram og til baka

Leyft öllum aldurshópum

Egill Andrason og árin sem mótuðu hann

Sviðslistamaðurinn og tónlistarmaðurinn Egill Andrason hefur vakið mikla athygli fyrir ljúfa framkomu og dugnað á undanförnum árum og þeir sem fylgjast með leikhúsi upplifa að hann sé eiginlega í öllum verkum! Egill fann sér samt tíma til að koma í fimmu og tala um fimm ártöl sem mótuðu hann. Samtalið fór víða og árunum fylgdi tónlist.

Í síðari hluta þáttarins hringdi Felix í dúx ME, Ínu Berglindi Guðmundsdóttur, en hún er líka tónlistarkona og hefur nýlega sent frá sér sitt fyrsta frumsamda lag. Svo kíktum við á það sem gerðist á deginum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Þættir

,