Fram og til baka

Móa og bækurnar fimm sem breyttu öllu

Gestur dagsins er söngkonan, guðfræðingurinn og kennarinn Móeiður Júníusdóttir eða Móa. Hún talar um fimm bækur sem breyttu lífi hennar og gerðu hana þeirri manneskju sem hún er. Móa var poppstjarna á tíunda áratugnum en venti kvæði í kross í orðsins fyllstu og lærði guðfræði. Hún gerðist svo kennari og er enn. Hún er enn gera tónlist og við heyrum nýjasta lagið hennar í þættinum.

Í siðari hlutanum heyrum við tónlist sem tengja við atburði sem gerðust á deginum, 7. mars.

Birt

7. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Þættir

,