Fram og til baka

Neistaflug, Innipúkinn og Unglingalandsmót UMFÍ

Verslunarmannahelgin og íslensk tónlist var í hávegum höfð hjá þeim Felix og Nönnu í þætti dagsins. Þau slógu á þráðinn hjá Maríu Bóel Guðmundsdóttur sem er stödd í Neskaupsstað þar sem Neistaflug fer fram um helgina. Þá fengu þau til sín þau Kolbrúnu Óskarsdóttur og Hrannar Mána Ólafsson, Kusk og Óvita, í hljóðver en þau ætla koma fram á Innipúkanum í kvöld.

Þar verður líka Unnsteinn Manúel og félagar í Retro Stefson en umsjónarmenn þáttarins vöktu hann með símtali í morgunsárið og fengu heyra af stemningunni í Vestmannaeyjum þar sem hljómsveitin spilaði í gær. Svo er líf og fjör á Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðarkróki en Felix og Nanna heyrðu í Auði Ingu Þorsteinsdóttur sem kom skipulagningu mótsins.

Birt

1. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Þættir

,