Heimsmeistaramótið og hátíðir um land allt
Umsjónarmenn Fram og til baka kynntu sér hátíðir á landinu og ræddu við Áskel Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóra Landsmóts hestamanna sem fer fram þessa helgina á Hólum í Hjaltadal.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.