Fram og til baka

Hinsegin gleði, Leikur einn og Hvanneyrarhátíð

Hinsegin dagar hápunkti um helgina og settu sinn svip á lagavalið í þætti dagsins hjá Felix og Nönnu. Í tilefni hátíðarinnar fengu þau til sín tónlistarmanninn Torfa sem ætlar einmitt koma fram á Pride balli í Gamla bíó í kvöld ásamt Páli Óskari, Álfgrími og fleiri góðum gestum. Þá leit uppistandarinn og fræðarinn Sóley Kristjánsdóttir einnig við og ræddi við þau um ferilinn og spennandi verkefni á döfinni.

Þá voru auðvitað fleiri hátíðir í gangi víða um land. Umsjónarmenn þáttarins hringdu vestur á Suðureyri í Elfar Loga Hannesson sem kemur skipulagningu hátíðarinnar Act Alone sem fer fram um helgina. Þá slógu þau einnig á þráðinn hjá Ragnhildi Helgu Jónsdóttur sem sagði þeim frá Hvanneyrarhátíð sem fer fram um helgina.

Birt

8. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Þættir

,