• 00:01:29Hist og...Hist Highness
  • 00:12:31Margrét Hallgrímsdóttir í Viðey

Víðsjá

Margrét Hallgrímsdóttir í Viðey og Hist Highness

Í ár eru 800 ár síðan klaustrið í Viðey hóf starfsemi sína árið 1226, en klaustrið var stofnað af höfðingjum þjóðveldisaldar, Snorra Sturlusyni og Þorvaldi Gissurarsyni. Margrét Hallgrímsdóttir, fornleifafræðingur og fyrrum þjóðminjavörður, fór fyrir fyrstu fornleifarannsókninni á minjum miðaldaklausturs í Viðey á árunum 1987-1995 og vinnur bók um niðurstöður rannsóknanna, sem eru um margt merkilegar og gefa upplýsingar um samfélag og sögu langt út fyrir strendur eyjunnar. Víðsjá mælti sér mót við Margréti í Viðey en auk þess líta meðlimir hljómsveitarinnar Hist og...við í hljóðstofu, þau Róberta Andersen og Eiríkur Orri Ólafsson, til segja frá nýrri hljómplötu sem heitir Hist Highness.

Birt

19. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,