Tónhjólið

Tónlist Eliane Radigue

Farið yfir ævi og störf raftónlistarkonunannar Eliane Radigue í tónum og tali.

Eliane Radigue (f. 1932 - d. 2026) kom víða við í heimi raftónlistar á ævinni, vann með bæði segulbönd og hljóðgervla en eftir aldamótin sneri hún blaðinu við og samdi alfarið hljóðfæratónlist í tónverkaröð sem nefnist OCCAM. Verk Radigue eru íhugul, löng og breytast hægt en eru áhrifamikil og dáleiðandi. Um miðjan áttunda áratugin gerðist Radigue búddisti og voru verk hennar á síðari hluta 20. aldarinnar innblásin af tíbetskri búddaspeki. Í Tónhjólinu 1. mars er ævi þessa magnaða tónskálds rakin og leikin brot úr verkum af ýmsum tímabilum ferils hennar.

Tónlist í þættinum:

Etude (1969)

Stress Osaka (1970)

Chry-ptus (1971)

Biogenesis (1974)

Elimination of Desires (úr Songs of Milarepa) (1983) Flytjendur: Lama Kunga Rinpoche og Robert Ashley.

Kyema (úr Trilogie de la Mort) (1988)

L'ile Re-Sonante (1998)

Occam IV (2012) Flytjandi: Julia Eckhardt: Víóla. Hljóðön, 2021.

Occam Delta XIX (2018) Flytjendur: Yannick Guedon - Viola da Gamba og rödd, Carol Robinson - Birbinye, Bertrand Gauget - altsaxófónn.

Birt

1. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Tónhjólið

Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.

Þættir

,