• 00:34:51Hildur Vala og Einar Lövdahl í Meðmælasúpu
  • 01:54:20Gísli Einarsson á leið á sitt ellefta blót

Helgarútgáfan

Einar Lövdahl og Hildur Vala mæla með, Gísli Einars blótar ellefu sinnum og lög um ástina

Valentínusardagurinn,er dagur helgaður ástinni sem haldinn er hátíðlegur á messudegi heilags Valentínusar 14. febrúar ár hvert. Helgarútgáfan hampaði því lögum um ástina sem eru mýmörg á mörgum tungumálum og hlustendur aðstoðuðu með fyrirmyndartillögur fjölmörgum skemmtilegum laugardagslögum sem fjalla um ástina.

Við fengum fína gesti þegar þau Hildur Vala Einarsdóttir tónlistarkona og tónlistarkennari og Einar Lövdahl rithöfundur, textasmiður og tónlistarmaður komu í heimsókn með fulla vasa af meðmælum í hina uppbyggilegu og skemmtiulegu Meðmælasúpu. Þar kenndi ýmissa grasa og nefndu til dæmis Berit, betri maður, Þú sem ert á jörðu eftir Nínu Ólafsdóttur, 22.11.63 eftir Stephen King, beyglur og blóðmör og sitthvað fleira.

Þau eru fjölmörg sem blótað hafa þorrann í ár en sem hefur mögulega sigrað þorrann þessu sinni og gæti verið útnefndur þorrablótskóngur ársins heitir Gísli Einarsson frá Borgarnesi, Gísli í Landanum líkt og sum kalla hann. Hann hefur heimsótt tug blóta á síðustu vikum og var á leið á tvö blót þetta kvöldið. Við hringdum í Gísla.

Hér er svo rómantíski lagalisti Valentínusardagsins:

Frá kl. 12:45

ÐE LÓNLÍ BLÚ BOJS - Ást við fyrstu sýn

PÁLL ÓSKAR OG BENNI HEMM HEMM - Valentínus

HOWARD JONES - What Is Love?

JÓN JÓNSSON, GDRN - Ef ástin er hrein

HILDUR VALA - Þú hittir

WANNADIES - You.And.Me.Song

MANNAKORN - Ó, þú

DOLLY PARTON - I will always love you

Frá kl. 14:05

PÁLMI SIGURHJARTARSON, STEFANÍA SVAVARSDÓTTIR - Karaoke for two

PÁLL ÓSKAR OG MILLJÓNAMÆRINGARNIR - Something Stupid

RAGNHEIÐUR GRÖNDAL - Ást

REYKJAVÍK! - Advanced dungeons and dragons

FRUMBURÐIR, DANIIL - Bráðna

Frá kl. 15:05

HRAUN - Clementine

ÁRNÝ MARGRÉT - Hakk og spaghettí

BAD BUNNY - DtMF

WARMLAND - Superstar minimal

EGÓ - elska er finna til

10 CC - The Things We Do For Love

ÁSGEIR TRAUSTI - Against the Current

INSPECTOR SPACETIME - Smástund

PRINS PÓLÓ - Raddir efans

UB40 - Can't help falling in love

Birt

14. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær hljóma.

Þættir

,