• 00:05:22Fugl dagsins
  • 00:14:25Magnús Orri og Elva Björg - Með okkar augum
  • 00:28:54Bæjarperla dagsins - Eyrarbakki

Sumarmál

Með okkar augum og Bæjarperla frá Eyrarbakka

Í Bæjarperlum vikunnar er ferðinni heitið á Eyrarbakka. Þar var rætt við Lindu Ásdísardóttur, sérfræðing hjá Byggðasafni Árnesinga, og komið við í þremur sýningarhúsum safnsins; Húsinu, Kirkjubæ og Sjóminjasafninu. Linda sagði frá sögu Eyrarbakka, samgöngum í Árnessýslu áður en stórfljótin voru brúuð, lífi alþýðufólks á millistríðsárunum, sjósókn við Suðurströndina og mannlífinu á Eyrarbakka í dag. Hinrik Wöhler er umsjónarmaður Bæjarperla í Sumarmálum.

Sextánda þáttaröðin af Með okkar augum fer í gang á morgun. Magnús Orri Arnarson og Elva Björg Gunnarsdóttir eru meðal umsjónarfólks og dagskrárgerðarfólks í þessari vinsælu og margverðlaunuðu sjónvarpsþáttaröð. Þau segja okkur frá viðfangsefnum nýju þáttanna.

Fugl dagsins er á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Ég heyri vorið /Sextett Ólafs Gauks. Lag: Oddgeir Kristjánsson. Texti: Ási í bæ.

The Window Cleaner/ Geoge Formby. Höf.: Cliff & Glifford.

Augun þín blá/Uppáhellingarnir(Jón Múli og Jónas Árnasynir)

Operator/Manhattan Transfer.

Nótt/Friðrik Ómar Hjörleifsson. Lag: Gunnar Þórðarson. Texti: Þorsteinn Eggertsson.

Birt

18. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,