Sumarmál

Veganesti,Strandmenning,Fugl dagsins og Hamraborg Festival

Við litum við í Hamraborginni í Kópavogi og tökum stöðuna á undirbúningi fyrir Hamraborg Festival sem hefst á morgun. Listafólk tekur yfir miðbæinn og fyllir hann af gleði og list og fyllir til dæmis uppí sprungur í götunni og hengir upp verk í Krónunni matvöruverslun. (Ásgerður Arnardóttir, Pétur Eggertsson og Megan Auður)

Í dag hefst strandmenningarhátíðin „Auður hafs og stranda“ sem haldin er á Siglufirði. Hátíðin er á vegum Vitafélagsins íslensk strandmenning í samstarfi við fjölmarga aðila á Siglufirði, til dæmis Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki sem mætir með 30 smíðanema, listamenn og fleiri. Á hátíðinni verður boðið upp á mjög fjölbreytta dagskrá sem dregur fram ríkan menningararf íslenskra sjávarbyggða og tengsl þjóðarinnar við hafið. Sigurbjörg Árnadóttir var á línunni frá Siglufirði.

Og svo er það Veganestið, síðasta Veganesti Sumarmála og Páll Ásgeir Ásgeirsson útivistarfrömuður skoðaði Höfuðborgarsvæðið í dag.

En fugl dagsins var fyrstur á dagskrá.

Tónlist frá útsendingarlogg 2026-08-27

Parton, Dolly, Jones, Norah - Creepin' in.

Ragnar Bjarnason, Elly Vilhjálms - Hvert er farið blómið blátt?.

Sigurður Ólafsson Söngvari - Síldarvalsinn.

Álftagerðisbræður - Undir dalanna sól.

Birt

27. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,