Sumarmál

Ávaxtaflugur og Önundarfjörður

Við ræðum hvimleiðan og óboðinn gest sem dúkkar upp á sumum heimilum, oft um þetta leyti árs, og gengur undir nöfnum á borð við ediksgerla, bananafluga og ávaxtafluga. Jón Már Halldórsson, líffræðingur, kemur til okkar í spjall og við ræðum þessa uppáþrengjandi en merkilegu flugu, matarsmekk hennar, vísindalegt gildi og mögulegar leiðir til þess losna við hana.

Í Bæjarperlum vikunnar er brugðið örlítið út af vananum en er heill fjörður tekinn fyrir og leiðin liggur um Önundarfjörð. Á Kirkjubóli í Valþjófsdal er rætt við Sigríði Magnúsdóttur, sem tók á móti kúnni Sæunni eftir hún hafði synt rúma tvo kílómetra yfir fjörðinn árið 1987. Sigríður rifjar upp þennan merkilega dag og segir sögu Sæunnar.

Minning hennar lifir áfram í Sæunnarsundinu sem fer fram í lok mánaðar og í Sæunnarhaug, þar sem hún var heygð við sjávarkambinn á staðnum þar sem hún kom landi.

Tónlist:

Campbell, Glen - Grow old with me.

Brimkló - Þjóðvegurinn.

Fjallabræður - vinur minn.

Stefán Hilmarsson - Svanir flugu suður.

Birt

11. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,