Sumarmál

Hjólaði í kringum landið í mótvindi og afi fylgdi í humátt og fugl dagsins

Það vakti athygli 17 ára piltur Einar Dagur Brynjarsson hjólaði hringinn í kringum landið, um 1300 kílómetra á 10 dögum, til styrktar Barnaspítala Hringsins. Og þetta er ekki í fyrsta sinn sem Einar Dagur hjólar fyrir Hringinn, en fyrir tveimur árum hjólaði hann ásamt vini sínum frá Reykjavík til Akureyrar. Hjólaferðin var afar krefjandi og mótvindur stóran hluta leiðarinnar. Með í för voru vinkonur Einars og afi Einars, Einar J. Hilmarsson sem keyrði á húsbíl eftir honum. Ástæðan fyrir þessu framtaki Einars Dags er hann fæddist lungnaveikur og þurfti á aðstoð halda á Barnaspítala Hringsins. Þeir Einar Dagur og afi Einar komu í þáttinn í dag og sögðu okkur alla ferðasöguna.

Og svo var auðvitað fugl dagsins á sínum stað.

Tónlistin í þættinum:

Sól bros þín / Bubbi (Bubbi)

Ég fer á Landrover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Guðmundur Óskar Guðmundsson og Helgi Björns, texti Atli Bollason og Helgi Björnsson)

Stingum af / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)

Fly Me to the Moon / Diana Krall (Bart Howard)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

3. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,