• 00:06:43Fugl dagsins
  • 00:17:36Ferðasaga af Öskjuvegi

Sumarmál

Ferðasaga og fuglinn góði

Í dag reimuðum við á okkur grófbotna gönguskó. Gönguleiðin þvert yfir Ódáðahraun frá Herðubreiðalindum í austri til Svartárkots í Bárðardal í vestri hefur verið nefnd Öskjuvegur. Þetta er alvöru öræfaganga um stærstu samfelldu hraunbreiðu landsins, og leiðin alsett sönnum hálendisperlum. Ferðafélag Akureyrar hefur byggt þessa gönguleið upp og reist þar skála og við ræddum við tvo þaulvana leiðsögumenn, þau Kristínu Irene Valdimarsdóttur sem er nýkomin með hóp úr göngu og Ingvar Teitsson sem leiðsagði á Öskjuveginum um áratuga skeið, þau eiga það sameiginlegt hafa kynnst svæðinu ung, orðið hugfangin og eru það enn.

Fugl dagsins var auðvitað á dagskrá, auk ljúfra tóna héðan og þaðan.

Tónlist:

Elska þig - Mannakorn og Ellen Kristjánsdóttir / Höf.: Magnús Eiríksson.

A love that will never grow old - Emmylou Harris / Lag: Gustavo Santaolalla, texti: Bernie Taupin.

Starman - David Bowie / Höf.: David Bowie.

Birt

7. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,